15.09.2006 12:35

Jæja strákar, drífum í þessu

Jæja eigum við ekki að hætta að tala um þetta og drífa í því að kaupa okkur nýjar æfingagalla og nýja skó? Ég persónulega er orðin leiður á því að þurfa að æfa í sömu fötunum og ég gerði þegar ég fyrst prófaði að spila körfubolta. Drullumst til þess að borga þetta og verðum töff á þarnæstu æfingu, ef ekkert gerist neyðist ég til þess að draga fram bleiku stuttbuxurnar aftur og það er komið gat á skóna mína. (ég fæ kannski lánaðan þrönga hvíta spandex bolinn hans Samma til að toppa þetta allt saman). Við erum að tala um kostnað sem fer í eitt gott fillerý. Just do it......... fæ ég hallelúja?
Flettingar í dag: 136
Gestir í dag: 4
Flettingar í gær: 41
Gestir í gær: 3
Samtals flettingar: 106452
Samtals gestir: 23288
Tölur uppfærðar: 26.4.2026 04:23:35