01.11.2006 18:20

Fyrsti sigurinn!

Fyrsti sigurleikurinn er staðreynd. Við fengum vinalið okkar Brokey í heimsókn í Austurbergið og endaði sá leikur 70-61. Halli og Ari voru stigahæstir báðir með 14 stig sem er glæsilegt.

Næsti leikur verður á móti Reyni Sandgerði í Sandgerði á laugardag klukkan 5. Allir alvöru Leiknismenn láta sig að sjálfsögðu ekki vanta á þann leik.

Það var dregið í bikarnum í dag. Við verðum að spila í undankeppni líkt og í fyrra. Við lendum á móti Glóa. Ef við vinnum þá þá spilum við á móti KR-b 24-26.nóv.

Mottukeppnis myndir eru ennþá væntanlegar og prófílarnir líka. Verið er að vinna í því en svona til þess að hita aðeins upp set ég tvær myndir hér að neðan.

 

 

Það var ekkert fleira í bili. Áfram Leiknir

Unnar

23.10.2006 12:18

Fyrsti leikurinn búinn

Fyrsti leikur tímabilsins er afstaðinn. Hann var spilaður á föstudaginn á móti Haukum-b.

Við töpuðum leiknum með 8 stigum en erum staðráðnir í því að læra af þessum ósigri og mæta grimmir til leiks á laugardaginn næsta í Austurbergi kl.13:30 þar sem við mætum Brokey.

Úrslit mottukeppninnar voru tilkynnt í partýinu heima hjá Samma á laugardaginn og var það enginn annar en Binni sem tók sig til og rústaði keppninni. (Myndir verða birtar fljótlega)

Ég vill nota tækifærið og hvetja alla þá sem geta til þess að koma á leikinn á laugardaginn 28.okt kl.13:30 og styðja við bakið á okkur.

Áfram Leiknir

Unnar

11.10.2006 12:18

Mottukeppni Leiknis 2006!

Eins og menn sjá þá er hægt að skarta mörgum tegundum af mottum.

Frá og með deginum í dag er hverjum Leiknis manni bannað að raka sig! Á fyrsta leikdag eða þann 20.okt raka svo menn allt af nema mottuna( allt nema fyrir ofan munn). Þó má koma með ýmsar týpur þarna inn eins og donuttinn.. og skarta svo í leiknum!

Ef kærastan eða yfirmaðurinn verða með einhver leiðindi þá segiði þeim að þjálfarinn ykkar hafi einfaldlega skipað ykkur að gera þetta annars væruð þið reknir úr liðinu!

Koma svo strákar! Einn fyrir alla og allir fyrir einn!!

Lengi lifi mottan og Leiknir

24.09.2006 14:52

Árshátíðarsjóðurinn...

Jæja eins og allir eiga að vita þá er árshátíðarsjóðurinn kominn á fullt skrið. Fyrsta uppfærslan er kominn inn og hefur Mikki tekið forystuna með 1200kr með því að mæta fjórum sinnum seint á æfingar en þetta er fljót að breytast og verður gaman að sjá hver fær þann umdeilda titil Árshátíðarmaðurinn. Heiðar bar sigur úr býtum í fyrra með nokkuð miklum yfirburðum. Hann borgaði 7800kr en Palli var í öðru með 5000kallinn eftir afleita mætingu eftir jól.

Ef þig langar ekki í þennan titil þá minni ég þig á að láta Samma vita tímalega hvort þú komir á æfingu eða seinki eitthvað, annars er það 300kr í sjóðinn. Svo er líka hægt að fá sekt ef þú færð á þig dæmda tækni/ásetningsvillu í leik en það er 5ookell.

Til að sjá þenna lista þá er hann hér fyrir ofan merktur: Árshátíðarsjóður

Og munið það þýðir ekki að deila um listan...

15.09.2006 12:35

Jæja strákar, drífum í þessu

Jæja eigum við ekki að hætta að tala um þetta og drífa í því að kaupa okkur nýjar æfingagalla og nýja skó? Ég persónulega er orðin leiður á því að þurfa að æfa í sömu fötunum og ég gerði þegar ég fyrst prófaði að spila körfubolta. Drullumst til þess að borga þetta og verðum töff á þarnæstu æfingu, ef ekkert gerist neyðist ég til þess að draga fram bleiku stuttbuxurnar aftur og það er komið gat á skóna mína. (ég fæ kannski lánaðan þrönga hvíta spandex bolinn hans Samma til að toppa þetta allt saman). Við erum að tala um kostnað sem fer í eitt gott fillerý. Just do it......... fæ ég hallelúja?

12.09.2006 00:15

Góð tilþrif...

Ég rakst á skemmtilega frétt á heimasíðu fjölnis, hún er um Einar og hæfileika hans með bolta.
Einar Árna hefur alltaf verið frekar flinkur með boltann og ef þið viljið sönnun þá er hún hér.

Einar er einn af nýliðum liðsins og hann á eflaust eftir að styrkja okkur mikið í baráttunni um að komast í úrslittakeppnina. Einar lendi í frekar óheppilegu slysi í sumar þegar hann handleggsbraut sig á báðum en er allur að koma til. Hann er farinn að mæta á æfingar og tekur vel á því og um leið er hann að fífla okkur hina með knatttækni sinni.

11.09.2006 19:00

Dómaranámskeið næstu helgi

Næstu helgi, 16.-17. september, stendur KKÍ fyrir dómaranámskeiði í Njarðvík.

Námskeiðið hefst á laugardagsmorgni og stendur fram að kvennalandsleik. Á sunnudeginum verður námskeiðið svo klárað þar sem allir þátttakendur fá tækifæri til að dæma með leiðsögn leiðbeinanda. Nánari dagskrá verður send út í vikunni.

Frítt er fyrir alla á námskeiðið, en nauðsynlegt er að áhugasamir skrái sig í tölvupósti eða til skrifstofu KKÍ í síma 514-4100.
  


The image ?http://gunni.mikkivefur.is/myndir/kkdi.jpg? cannot be displayed, because it contains errors.

06.09.2006 13:12

ÆFINGAR!! ÆFINGAR!!

Það er komið á hreint með æfingatímana!!

Vinir okkar úr knattspyrnudeildinni eru búnnir að redda okkur tveimur æfingatímum í Fellaskóla og þakka ég formanninum honum Arnar það.

Það er hægt að skoða æfingatöfluna hér.

Annars lítur hún svona út: Mánud. í Fellaskóla kl.22 til 23 - kanski ekki besti tíminn en aukaæfing enga síður.
Þriðjud. á Kjalarnesi kl. 19:30 til 21 - Smá keyrsla utanbæjar en mjög gott hús og frítt í sund.
Miðvikud. Frí -  einn af tveimur dögum sem ekki er spilaður körfubolti
Fimmtud. á Kjalarnesi kl.19 til 20:30 - 15min keyrsla frá Breiðholti er alveg þess virði.
Föstud. í Fellaskóla kl.18 til 19 - gamli tíminn okkar frá því í fyrra.
Laugard. hér og þar kl.?? -  keppt á íslandsmótinu ofl.
Sunnud. Frí - enginn körfubolti

Þannig að það verður tekið á því í vetur og stefna að bæta okkur frá því í fyrra!!!

Vill líka minna menn á að gera upp æfinga gjaldið sem fyrst, þeir sem ekki verða búnnir að borga í þessum mánuði verða ekki með okkur í vetur. Þeir sem ætla að fá æfingaföt verða leggja inná fyrir helgi, galinn er á 3500kr.

Stjórinn hefur talað!!!
Samson

01.09.2006 11:09

Paintballmót og partý um kvöldið!

Áður en að þetta tímabil byrjar þá er komið að paintballmóti sem verður haldið þann 2.sept (á morgun) kl.14:00, mæting kl 13:30. Upplýsingar um staðsetningu eru að finna á litbolti.is

Svo erum við að tala um partý hjá honum Steina á hringbrautinni um kvöldið. Mæting þangað er um kl.20. Myndbandssýning byrjar stundvíslega kl.21:00

Mætum sem flestir og gerum okkur glaðan dag!

Áfram Leiknir






25.07.2006 21:56

Núna tekur alvaran við!

Núna er komið að því að opinberar æfingar fari að byrja hjá okkur, og er þá næsta þriðjudags æfing fyrsta opinbera æfing keppnistímabilsins. Það þýðir að tilkynningar skylda í sambandi við forföll byrjar þá og árshátíðarsjóðurinn er kominn í gang.  Æfingar eru á þriðjudögum kl.19:30 á kjalarnesi.

Ég vill nota tækifærið og óska Einari góðs bata en hann mölbrotnaði um daginn á olnboga og únlið.. Láttu þér batna sem fyrst!!

Það var ekkert fleira í bili.

Unnar

05.07.2006 20:53

Sumarferð Leiknis

Það er kominn niðurstaða með ferðina, það verður farið helgina 21-23 júlí til Grundarfjarðar.
Könnunin sýndi að 53,8% af atkvæðum vildi fara þá helgi, Steini sagði mér líka að það væri skársti tíminn til að fá íþróttahúsið ofl svo það passar ágætlega.

Næsta skref er að raða mönnum í bíla en við gerum það á næstu æfingu, hérna kemur smá tjékklisti yfir dót sem ber að taka með:
  • Æfingaföt
  • Sundföt
  • svefnpoka
  • dýnu
  • áfengi
Steini ætlar að sjá um gistingu og redda okkur díl á grilllkjöti og meðlæti með því.
Matur verður á 1500 kr. og ef ég þekki Steina rétt þá veit ég að það verður nóg að éta...

Endilega kommenntið ef þið ætlið með og hafið einhverjar spurningar.




















Steini á sínum yngri árum á Grundarfyrði

20.06.2006 03:05

Æfingarleikur við Reyni Sandgerði

Jæja, búið að redda æfingarleik við Reyni Sandgerði í Sandgerði kl 7 næsta mánudag!!! Þeir sem langar að spreyta sig gegn fyrstudeildarliði endilega skráið ykkur!

Áfram Leiknir

14.06.2006 18:01

Sumaræfingar Part 2

Þá eru við komnir með æfingu í sumar, við munum æfa á Kjalarnesi á miðvikudögum kl.19:30.
Þetta eru æfingar fyrir þá sem vilja, sem sagt það er enginn árshátíðarsjóður í gangi, formlegar æfingar byrja 2.ágúst. Ég vona samt að sem flestir láti sjá sig í sumar þar sem samkeppnin verður harðari með hverju tímabili sem líður. Ég vil líka koma þeim skilaboðum á framfæri að borga fyrri greiðsluna í byrjun ágúst, þar sem mesti kostnaðurinn verður í byrjun tímabilsins og ég tek ekkert ílla í það hef menn vilja gera upp allt tímabilið strax í sumar. Hægt verður að sjá reiknisnúmerið í æfingum.

Sammi Coach

Áfram Leiknir



04.06.2006 18:27

Sumaræfing

Það er komið á hreint, fáum ekki fylkishúsið. En hvernig væri að leigja tíma til dæmis á Kjalarnesi eins og Sammi hefur haft orð á. Ég er alveg til í það þó svo ég kæmist þá bara á aðra hvora æfingu. Látið heyra í ykkur. Rodman er líka til

27.05.2006 08:55

Sumaræfingar

Hvað er að frétta af sumaræfingum? Væri flott ef einhver gæti ,,kommentað" og tjáð sig um það :D

Væri flott að heyra af Bjössa og markaðsdeildinni, hvernig eru undirmenn hans að standa sig???

Áfram Leiknir

Flettingar í dag: 149
Gestir í dag: 27
Flettingar í gær: 54
Gestir í gær: 8
Samtals flettingar: 27889
Samtals gestir: 9694
Tölur uppfærðar: 1.5.2024 15:00:38